Hulunni svipt af Ringó og Júlíusi á Obla di!

Júlli og RingoVeitingahusið Obla di við Frakkastíg 8 sem er í eigu Davíðs Steingrímssonar heldur mikilli tryggð við bresku Bítlana og þeirra tónlistararf. Málverk af Paul, John og George prýða veggi og í gærkveðldi var afhjúpað málverk eftir Ómar Stefánsson listmálara af  fjórða meðlimi kvartettsins, Ringó Starr. Fyrirmyndin af málverkinu var ljósmynd af Ringó Starr sem tekin var baksviðs í Atlavík 19984. Með honum á þeirri ljósmynd var enginn annar en Júlíus Agnarsson hljóðmeistari Stuðmanna til margra ára og var afráðið að hann yrði við hlið Ringó á málverkinu , líkt og á ljósmyndinni sem höfð var til hliðsjónar.

Í gærkveldi var málverkið síðan afhjúpað að viðstöddu fjölmenni, þ.m.t. sonum, systrum og barnsmóður Júlíusar heitins. Félagar hans úr Stuðmönnum tileinkuðu honum nokkur lög sem flutt voru við þetta tækifæri og síðan sameinuðust eigandinn Davíð og listmálarinn Ómar við að svipta hulunni af málverkinu við mikinn fögnuð nærstaddra.

Meðfylgjandi myndir eru frá athöfninni.Júlli og Ringó

 

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.