Icelandic Sagas: Greatest Hits í Hörpunni

Screen Shot 2016-05-16 at 12.57.07Tveir af frambærilegustu leikurum þjóðarinnar, Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson, kynna Íslendingasögurnar – Brot af því besta á 75 mínútum – stórskemmtilega leikhús rússíbanaferð í gegnum þjóðararf íslensku fornbókmenntanna í Hörpunni.

Íslendingasögurnar eru 40 sannar sögur af fyrstu kynslóðum íslenskra landnema – Það er að segja Íslendingar segja að þær séu sannar. Flestir aðrir segja: Nei Heyrðu nú Hemmi minn!

Allir geta hinsvegar verið sammála því að þær eru stórbrotnar sögur af dugandi mönnum og djörfum konum. Rúmlega þúsund ára gamlar frásagnir af strandhöggi erlendis og blóðhefndum heima fyrir. Sögur sem gengið hafa mann fram af manni og varðveist á skinnhandritum.

Íslendingasögurnar eru skínandi krúnudjásn íslenskrar þjóðmenningar, raunsannar lýsingar af ofurvenjulegum víkingum sem kljást við ofurvenjuleg víkingavandamál – Eins og hvernig maður fær konuna sína til að hætta að drepa þræla nágrananna, hvernig eigi að bregðast við þegar manni er sagt að stanga rassgarnarenda merarinnar úr tönnunum og hvernig eigi að hefja málaferli við mág sinn fyrir að standa ekki undir væntingum eiginkonu sinnar. Velkominn í heim Hallgerðar Langbrókar, Gunnlaugs OrmsTungu, Víga-Glúms, Haraldar Hárfagra, Mjallar sem-stærst-var-allra-kvenna-sem-ekki-voru-risar og Leifs Heppna sem fann Ameríku og týndi henni aftur.

Þú hittir þau öll í Icelandic Sagas: The Greatest Hits, eða Íslendingasögurnar – Brot af því besta á 75 mínútum, í Hörpunni. Leyfið sögunum að hrífa ykkur, uppfræða og skemmta – og komist að því hvað það merkir að kasta bláum brókum upp í opið geðið á fólki. Í alvöru.

Sýningartímar eru kl. 20:00-21:15 frá 12. maí – 31. ágúst, 2016

Staðsetning: Harpa, Austurbakka 2, 101 Reykjavík

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.