Íslensk kaffihús í sérflokki

15 mars, 2014 Fréttir

521747_288486637945398_256908079_nEngum sem dvalið hefur meðal annarra þjóða blandast hugur um ágæti okkar íslensku kaffihúsa. Miðborgin skartar miklum fjölda frábærra kaffihúsa sem hafa á boðstólum sérvaldar baunir, nýbrenndar og malaðar, fyrirtaks meðlæti og þá eru íslenskir kaffiþjónar meistarar í framreiðslu skreytts eðalkaffis og meðlætis.

Kaffitár, Te og kaffi, Kaffistofa Íslands, Mokka, Stofan, Café Mezzo á efri hæð Iðu, Súfistinn og fjölmörg fleiri kaffihús í miðborginni  halda uppi gæðaviðmiði sem stenst allan samanburð við það besta meðal stórþjóðanna.

 

Vinna með okkur

Vinna með okkur

Hafa Samband
Eða
Skrá mig í samtökin

Skrá mig í samtökin

Skrá fyrirtæki