Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi opinn laugardag og sunnudag kl.12 – 18.
8 desember, 2013 FréttirJólamarkaðurinn í Jólabænum á Ingólstorgi var formlega opnaður í gær, 7.desember, en það var Dagur Eggertsson formaður Borgarráðs sem opnaði Jólabæinn í forföllum Borgarstjóra. Barnakórinn Graduale Futurae brá sér í gervi Tröllabarna og söng nokkur lög auk þess sem hin nýbakaða jólavættur Leiðindaskjóða brá á leik, söng og safnaði leiðindum til að útrýma.
Jólamarkaðurinn verður opinn til kl. 18 í dag , sunnudag.