Nýjar tillögur um Laugaveg og Óðinstorg kynntar
16 janúar, 2015 FréttirLagðar hafa verið fram nýjar tillögur um framtíðarútlit Laugavegs og Óðinstorgs. Nokkrar þeirra hafa hlotið sérstakar viðurkenningar borgaryfirvalda.
Gert er ráð fyrir útimarkaði og afþreyingarsvæði á Óðinstorgi og að gangandi og hjólandi umferð verði gert hærra undir höfði en nú er á Laugavegi. Áhugasömum gefst kostur á að kynna sér tillögurnar í Ráðhúsinu yfir helgina þar sem þær munu hanga uppi.