Ólafur Bach Elíasson

Píanóleikarinn Ólafur Elíasson leikur nokkrar af 48 prelódíum og fúgum Bachs á flygilinn í Dómkirkjunni öll þriðjudagskvöld.

Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleikara á Íslandi en stundaði framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music) þar sem hann lauk einleikaraprófi 1994.

Ólafur hefur haldið tónleika víða, bæði hérlendis og erlendis. Hann hefur leikið inn á nokkra geisladiska, meðal annars píanókonserta bæði eftir Bach og Mozart ásamt sinfóníuhljómsveitinni London Chamber Group og hafa þeir fengið frábæra dóma. Ólafur hefur einnig leikið sem meðleikari með Sigurði Bragasyni baritón og hafa þeir haldið fjölda tónleika víða, og í sumum þekktustu tónleikahúsum heims svo sem Carnegie Hall í New York, Wigmore Hall í London og Kennedy Center í Washington. Ólafur hefur meðal annars komið við sögu í tímaritum eins og Washington Post sem sagði: að leikur hans væri bæði nákvæmur og líflegur!

Síðustu ár hefur Ólafur einbeitt sér að verkum J.S. Bachs en hann hyggst hljóðrita allar prelódíur of fúgur Bachs á næstu árum.

Aðgangur er ókeypis.

Tímasetning: Alla þriðjudaga frá kl. 20:30-21:00

Staðsetning: Dómkirkjan Kirkjustræti 16, 101 ReykjavíkScreen Shot 2016-05-18 at 22.21.17

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.