Richard Mosse: Hólmlendan

Hólmlendan er fjörutíu mínútna myndbandsverk sýnt á sex risaskjám auk ljósmynda. Myndirnar eru teknar í austurhluta Kongó. Upptökurnar eru magnþrungnar og óraunverulegar, í bleikum tónum, og sýna stríðshörmungarnar í landinu. Að auki er til sýnis úrval stórra ljósmynda úr myndböndunum.

Grunnurinn að verki Mosse er hugmyndin um að ofgnótt ímynda frá stríðshrjáðum svæðum hafi gert okkur ónæm fyrir þeim hörmungum sem stríð hefur í för með sér. Hræðilegar myndir frá átakasvæðum víðs vegar um heiminn birtast svo reglulega á skjám okkar að oft sláum við þær einfaldlega út af borðinu sem enn eitt sjónrænt áreitið. Mosse varði nokkrum árum við myndatökur af mið-afrísku fólki og landslagi sem hefur orðið illa úti í stríðsátökum. Hann notaði aflóga innrauðar filmur sem voru hannaðar í hernaðarlegum tilgangi til að koma auga á skotmörk í felulitum. Þessar filmur nema ósýnilegt litróf og breyta grænum lit í skærbleikan, þannig að landslagið tekur á sig óraunverulegan, litskæran blæ. Mosse og samstarfsmenn hans, kvikmyndatökumaðurinn Trevor Tweeten og tónskáldið Ben Frost, komu sér fyrir á meðal vopnaðra kongólskra uppreisnarmanna. Afurðin, Hólmlendan, er bleik og heillandi, hryllileg og afar áhrifamikil sýning ímynda frá þessu stríðshrjáða svæði.

Þetta verk Mosse var frumsýnt á fimmtugasta og fimmta Feneyjatvíæringnum árið 2013, þar sem hann var fulltrúi Írlands. Hólmlendan veitir afar fagra og ásækna mynd inn í landsvæði í Afríku þar sem borgarastyrjöld, óróleiki og mannlegar hörmungar hafa staðið yfir í marga áratugi.

Richard Mosse fæddist á Írlandi árið 1980 og býr í New York. Hann lauk listnámi frá Goldsmiths í London 2005 og ljósmyndanámi frá Yale listaskólanum 2008. Mosse hefur sýnt í Strozzi-höllinni í Flórens, Weatherspoon listasafninu í Greensboro, Bass listasafninu í Miami, Bethanien listasafninu í Berlín, Írsku menningarmiðstöðinni í París, Tate Modern safninu í London og á tvíæringnum í Dublin. Árið 2014 fékk hann Deutsche Börse ljósmyndaverðlaunin.

Sýningartími: Frá 8. nóv. 2016 – 1. jan. 2017

Staðsetning: Hafnarhús – Listasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.