Þættir Úr Náttúrusögu Óeirðar – Unnar Örn

Sýningin Þættir úr náttúrusögu óeirðar markar endalok vettvangsathugunar Unnars Arnars á sögu óeirðar hér á landi þar sem hann hefur kannað hvernig óeirð birtist í sameiginlegu minni þjóðarinnar með margvíslegum hætti. Unnar hefur beint sjónum að togstreitunni á milli opinberrar sögu samfélagsins og frásagna úr lífi einstaklinga í verkum sínum, en að undanförnu hefur hann einblínt á birtingarmyndir af átökum og óhlýðni fjöldans. Verk með áþekku viðfangsefni voru m.a. í sýningunum Brotabrot úr afrekasögu óeirðar: II. hluti á Listasafn ASÍ árið 2014 og á sýningunni Niðurinn í Safni Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð árið 2015.

Líkt og oft áður er hluti verkanna sem Unnar Örn sýnir í formi prentaðs efnis, útgáfu sem taka má með sér af sýningunni. Að þessu sinni er það bók sem samnefnd er sýningunni og inniheldur ljósmyndir sem birta óeirð af einhverju tagi. Þær sýna hvers kyns samkomur sem farið hafa fram hérlendis; mótmæli, fjöldagöngur, jafnvel hátíðir eða formlegar athafnir valdhafa. Ljósmyndirnar spanna tímabilið frá 1880 til dagsins í dag en verkið er að mestu leyti unnið upp úr heimildum af Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Útgáfan sýnir hvernig Unnar beitir miðli bókarinnar á markvissann hátt til að draga fram og skoða viðfangsefni sín á sjónrænann hátt. Verkið bætist í safn bókverka sem hann hefur gefið út á síðustu 10 árum og mynda einstakt höfundarverk íslensks myndlistarmanns.

Sýningin stendur til 23.10. Opnunartímar Harbinger eru fimmtudaga – laugardaga, frá kl. 14 – 17.

Sýningin hlaut undirbúningsstyrk frá Myndlistarsjóði.

Unnar Örn lauk Mastersnámi við Listaháskólann í Malmö árið 2003 og útskrifaðist frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands árið 1999. Í myndlist sinni vinnur Unnar Örn gjarnan með staðreyndir, frásagnir og merkingu Sögunnar, og gefur henni annað samhengi innann ramma myndlistarinnar.

Dagsetning: 24. sep. – 23. okt.

Staðsetning: Harbinger, Freyjugata 1, 101 Reykjavík

Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.
© 2023 Miðborgin Reykjavík - Allur réttur áskilinn - Bankastræti 5, 101 Reykjavík
Miðborgin Reykjavík er samstarfsvettvangur rekstraraðila í miðborginni.