Month: september 2012

Bill Frisell á lokakvöldi Jazzhátíðar Reykjavíkur

Glæsileg Jazzhátíð Reykjavíkur er senn að baki og á lokakvöldi hennar laugardaginn 1.september leikur hinn heimsfrægi gítarleikari Bill Frisell lög John Lennon í nýjum útsetningum ásamt hljómsveit sinni. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og fara fram í Silfurbergi Hörpu. Hægt að nálgast miða í Hörpu eða á midi.is. Mynd: www.reykjavikjazz.is/

Almenn ánægja með sumarið

Sumarið 2012 verður að líkindum lengi í minnum haft fyrir einmuna veðurblíðu og meiri straum erlendra ferðamanna en nokkru sinni í samanlagðri sögu þjóðarinnar. Framundan bíða verkefni á borð við mælingar á innlendri veltu og erlendri, samningar um framhald á tilraunum með göngugötur – eður ei- , ummönnun torga á borð við Ingólfstorg, Hjartatorg o.fl…. Read more »

Upplifunarmekkan Ísland!

Menningarnótt markaði upphaf  samfellds hátíðahalds sem stendur frá 18.ágúst til ársloka. Vel heppnuð Jazzhátíð Reykjavíkur er að baki, kvikmyndahátíðin RIFF, Reykjavik International Film Festival hefst síðar í september og rennur saman við Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin sem hér verða haldin  5. & 6. október. Þá styttist í þann hápunkt aðsóknar erlendra gesta sem alþjóðlega tónlistarhátíðin Airwaves markar,… Read more »

Sumarauki í september

Blíðviðrið sem einkennt hefur veðurfar sumarsins virðist ætla að halda áfram. Laugardagurinn 8.september hófst sem hásumardagur og mannlífið lætur ekki á sér standa. Vinnustofan LomaLAB undir handleiðslu tónskáldsins Jespers Pedersen í Listasafni Reykjavíkur kl. 13:00 , Skákveisla í Ráðhúsinu kl. 14:00 , Heilsdags-chill á Hjartatorgi og Sálgæslusveit Sigurðar Flosasonar í Munnhörpunni kl. 15:00 eru meðal… Read more »

Tilboð á taupokum

Bros býður nú úrvals taupoka á frábæru verði. Taupokar eru frábær leið til þess að koma þínum skilaboðum eða vörumerki á framfæri, þeir eru bæði umhverfisvænir og skapa jákvæða ímynd við þitt vörumerki eða fyrirtæki. Afgreiðslutími er 5 dagar frá samþykkt á próförk. Stærð: 36 x 36 cm. Efni: 100% bómull, 140 g/m2. Verð m.v. 100 poka:… Read more »