Tónlist, sköpun og tækni er yfirskrift Sónarhátíðarinnar sem haldin er í Hörpu fjórða árið í röð. Yfir 60 listamenn og hljómsveitir koma fram á hátíðinni á fimm sviðum. Auk aðal-sviðana tveggja, SonarClub (Silfuberg) og SonarHall (Norðurljós), mun bílakjallarinn verða vettvangur fyrir erlenda og innlenda plötusnúð. Nýja sviðið SonarPub verður í ár eins og í fyrra… Read more »
Month: febrúar 2016
Gæði, úrval og persónuleg þjónusta
Sigurboginn hóf starfssemi sína á horni Laugavegar og Barónsstígs fyrir tæpum aldarfjórðungi og hefur allt frá upphafi haldið úti framúrskarandi þjónustu við dömur á öllum aldri. Í Sigurboganum eru seldar snyrtivörur, fatnaður, sokkabuxur, aðhaldsfatnaður, sundfatnaður, skart, slæður og fleira. Miðborgin okkar tók eigandann Hafdísi Steinarsdóttur, eða Dísu eins og hún er kölluð, tali og fékk… Read more »
Spunnið úr Spottum miðborgarstólpa
Hljómsveitin Spottarnir blæs til tónleikanna Cornelis och En Bellman í Norræna húsinu næstkomandi föstudag, 26. febrúar kl. 20:00. Miðaverð er 2500 kr, miðasala fer fram á tix.is og í móttöku Norræna hússins. Hljómsveitin Spottarnir hefur nú starfað í áratug. Söngvar og vísur eftir sænska skáldið Cornelis Vreeswijk eru uppistaðan í efnisskrá hljómsveitarinnar, en hún leitar… Read more »
Vá! Þú ert bara ennþá hérna!
Helgi Sigurðsson hefur starfað sem úrssmiður frá árinu 1958. Hann flutti sig yfir á Skólavörðustíg 3 árið 1967 og hefur verið með verslun og verkstæði þar síðan sem setur sterkan svip á Skólavörðustíginn. Verslunin verður 50 ára á næsta ári. Helgi er á níræðisaldri og stendur enn vaktina. “Ég er elsti starfandi úrsmiður á landinu…. Read more »
Hugleitt í Ráðhúsinu
Á sunnudaginn var nokkuð öðruvísi um að lítast í Ráðhúsinu en vanalega en þar var hátíðarsalurinn þéttskipaður fólki liggjandi á dýnum í djúphljóðbylgjuhugleiðslu. Um var að ræða opnunarviðburð hugleiðsluhátíðarinnar Friðsæld í Febrúar, en hátíðin er enn í fullum gangi. Það er útgáfan Í boði náttúrunnar, í samvinnu við fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga, sem stendur fyrir… Read more »
Café Haiti – góður griðastaður við Gömlu höfn
Á Café Haiti er stöðugur straumur kaffiunnenda að gæða sér á kaffi. Eins og nafnið gefur til kynna koma kaffibaunirnar frá Haítí en þær eru brenndar á staðnum til að viðhalda ferskleika. Fyrir utan mikinn og góðan kaffiilm er það hlýlegt andrúmsloft sem tekur á móti manni þegar gengið er inn á Café Haiti í… Read more »
Opnunarkvöld Vetrarhátíðar á fimmtudag
Opnunarkvöld vetrarhátíðar verður á fimmtudaginn kemur, en þar verður ljósahjúpi Hörpu breytt í risastóran gagnvirkan striga, sem gestum og gangandi er kleyft að skreyta með sýndarmálningu. Hátíðin verður sett af Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra. Hátíðin stendur 4.-7. febrúar en öll sex bæjarfélög höfuðborgarsvæðisins taka þátt. Sundlauganótt, Safnanótt og Snjófögnuður eru auk gagnvirka sjónarspilsins á Hörpu… Read more »
The Cinema of Fire, ice and Northern lights
THE CINEMA við gömlu höfnina í Reykjavík sýnir daglega nokkrar íslenskar náttúrulífsmyndir eftir Valdimar Leifsson kvikmyndagerðarmann, t.d. Birth of an Island – the Making of Iceland, The Eruption! og The Beautiful Northern Lights. Þar er því hægt að njóta hinnar fjölbreyttu íslensku náttúru hvenær sem er, sem og norðurljósanna og fá útskýringu á tilvist þeirra…. Read more »
Framúrskarandi gæði og nýjar hugmyndir
Verslun Eggerts feldskera hefur um áratuga skeið sett sterkan svip á Skólavörðustíginn, en þetta rótgróna fjölskyldufyrirtæki, sem stofnað var af handverksfólki 1977, flytur inn og framleiðir yfirhafnir af hæsta gæðaflokki úr lambaskinni, roði og margskonar feldum. Allt efnið sem notað er í flíkurnar er sérvalið og keypt inn frá aðilum sem láta sig umhverfisvernd og… Read more »
Recent Comments