Month: febrúar 2017

Harpa skartar Ara, Mengi heilum skara!

Miðborgin er vettvangur fjölmargra ólíkra upplifana- og afþreyingarmöguleika. Helstu verslunargötur miðborgarinnar eru heilmikið sjónarspil eitt og sér, þar sem fjölbreytileikinn spannar allt litróf verslunar, þjónustu og mannlífs. Þá fer viðburðahúsum ört fjölgandi í miðborginni, jafnt í einkarekstri sem á vegum hins opinbera. Harpan býður daglega upp á fjölmarga spennandi möguleika svo sem 360° kvikmyndaða upplifun… Read more »

ORR hlýtur Njarðarskjöldinn

ORR Gullsmiðir hlutu Njarðarskjöldinn á fjölmennri samkomu í Listasafni Reykjavíkur þar sem 11 fyrirtæki voru tilnefnd. Ari Eldjárn sló tóninn við upphaf samkomunnar, Áshildur Bragadóttir flutti ávarp og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra afhenti síðan verðlaunin. S.G. hljómsveitin, með Sigurð Guðmundsson söngvara og píanóleikara í fararbroddi flutti tónlist sem féll vel í kramið í bland við… Read more »

Nýjar reglur kynntar um götuskilti og útstillingar

Kynningarfundur fyrir hagsmunaaðila um drög að reglum um afnot af borgarlandi vegna skilta og útstillinga verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar kl. 16-17 í Borgartúni 12 á sjöundu hæð í Kerhólum.   Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir frá verkfræðistofunni Eflu vann reglurnar með okkur og byrjar hún fundinn á kynningu og í kjölfarið verða umræður.   Drögin að reglunum eru… Read more »