Það dylst engum sem farið hefur um miðborgina að undanförnu að mikið líf hefur færst á þann hluta Laugavegar sem austan Frakkastígs er. Sjá Moggafrétt.
Month: júlí 2014
Litríkur Laugavegur
Undanfarna daga hefur neðsti hluti Laugavegar tekið stakkaskiptum og getur nú að lita í fjölmörgum glaðlegum litum. Verkefnið hófst við gatnamót Laugavegar og Skólavörðustígs og er undirtektir rekstraraðila reyndust jákvæðar…
Gengið gegn ofbeldi.
Druslugangan er orðin að árlegum viðburði í Reykjavík og víðar og hefst hún í dag kl. 14. Gengið er gegn kynferðisofbeldi og til að leggja áherslu á að standa þarf…
Götumatarmarkaðurinn Krás á Fógetatorgi
Dagur Eggertsson borgarstjóri opnaði götumatarmarkaðinn Krás á Fógetatorgi í dag, laugardaginn 26.júlí en markaðurinn verður opinn næstu fimm helgar. Frumkvöðlar verkefnisins eru matgæðingarnir Gerður og Ólafur Örn en Reykjavíkurborg styður…
Síðbúið sumar en kærkomið
Sumarið hefur verið dálítið rysjótt en allt stendur til bóta og þeir sólríku dagar sem að baki eru í sumar hafa sannarlega blásið gleði og kappi í kinnar miðborgarfólksins.…
Myndlist framin og sýnd undir beru lofti á Skólavörðustíg
Það fer ekki framhjá neinum sem á ferð um miðborgina að líf og litir setja svip sinn á hverfið og allt skín svo auðvitað og glitrar skærar fyrir tilstuðlan blessaðrar…
Blítt er undir björkunum
Eftir rysjótta tíð er brostið á með blíðu. Stemningin lætur ekki á sér standa og mannfólkið þyrpist léttklætt út á götur og torg miðborgarinnar. Á dögum sem þessum er hvergi…
Langur laugardagur 5.júlí skartar vatnaboltum, risaskjá og lifandi tónlist
HM risaskjár NOVA á Ingólfstorgi heldur áfram að draga að sér fólk, vatnaboltar á Lækjartorgi eiga vaxandi vinsældum að fagna og “nýju” torgin Skólatorg, Laugatorg og Barónstorg verða í vaxandi…
HM kætir hal og sprund á Ingólfstorgi
Mikil stemning ríkir þessa dagana á Ingólfstorgi enda hefur aldrei áður verið boðið upp á jafn glæsilega aðstöðu í miðborginni til að njóta heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Það er NOVA sem…
Recent Comments